|
|
 |
|
Söngferill sem hófst í strætó
Söngferill Önnu Vilhjálms hófst í Hafnarfjarðarstrætó þegar hún var smástelpa og var mönuð upp í að syngja fyrir farþegana. Henni var vel tekið enda var stúlkan lagviss og hafði kraftmikla rödd. Nokkrum árum síðar var hún farin að syngja með hljómsveit Gummars Ormslev og var þá aðeins á miðjum táningsaldrinum.
Söngferill Önnu er svolítið sérkennilegur. Hún bjó í Bandaríkjunum um tíma, enda gift þar, og söng meira að segja inn á hljómplötu sem gefin var út og dreift þar í landi. Sú plata sást hins vegar ekki í íslenskum hljómplötuverslunum, enda höfðu Íslendingar ekki hugmynd um þetta framtak. Ameríkanar voru sem sé ekkert að flíka þjóðerni stúlkunnar. Hún þótti sláandi lík söngkonunni Connie Francis þannig að hún var stundum fengin til að syngja lög hennar þegar hún bjó erlendis.
Þótt hún hafi fæðst og alist upp í Hafnarfirði hefur hún af og til búið á Suðurnesjum, meðal annars í Höfnunum um tíma eins og Elly Vilhjálms. Það varð til þess að margir hafa haldið að þær væru systur, ekki síst vegna þess að Anna söng um tíma með Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar eins og bróðir Ellyar, Vilhjálmur. En þær Anna og Elly eru ekkert skyldar. Ástæðan fyrir því að sú fyrrnefnda bjó í Höfnunum var atvinnulegs eðlis - og til að sýna, svo ekki yrði um villst, að þær söngkonurnar væru ekki systur, hefur eftirnafn Ellyar alltaf verið skrifað „Vilhjálms" en Anna er „Vilhjálmsdóttir" þótt hún sé einatt kölluð Anna Vilhjálms. Þó eiga þær söngkonur ýmislegt sameiginlegt. Þær hafa báðar sungið með Hljómsveit Svavars Gests, þær hafa báðar notið sín vel í dúettsöng með karlsöngvara, en Anna hefur löngum notið sín vel í samsöng með Einari Júlíussyni - sem Elly hefur reyndar sungið með líka.
En þegar öllum samlíkingum er sleppt er Anna Vilhjálms einstaklega sjálfstæð persóna með kraftmikinn og persónulegan söngstíl. Hún hefur að vísu sungið með frægum hljómsveitum en hún hefur líka stjórnað sínum eigin hljómsveitum af og til.
Texti: Þorsteinn Eggertsson
|
|
| |
 |